Merki hugmyndaráðs

Prenta
Skoða sem PDF skjal

20.2.2012 merki hugmyndarads2 MobileHugmyndaráð Laugarnesskóla  efndi til samkeppni um merki hugmyndaráðs í janúar.Úrslit liggja nú fyrir. Margar góðar tillögur bárust og hafði dómnefnd úr vöndu að ráða en tillaga Unu Sigrúnar Zoëga í 3.S bar sigur úr býtum. Við óskum Unu Sigrúnu til hamingju með frábæra tillögu.

Á myndinni er Una Sigrún með viðurkenninguna fyrir merkið ásamt skólastjóra Laugarnesskóla Sigríði Heiðu Bragadóttur.

              merki hugmyndarad Mobile

  Nýtt merki Hugmyndaráðs. 

Náttfatadagur

Prenta
Skoða sem PDF skjal

nattfatadagur20.2.2012

 

Í dag var náttfatadagur í Laugarnesskóla í tilefni bolludagsins. Mjög mörg börn mættu í náttfötum og mátti einnig sjá starfsfólk í slíkum múnderingum.Haldið var náttfataball í frímínútum og var vel mætt og mikil þátttaka í dansinum að vanda. Börn og fullorpðnir kemmtu sér konunglega eins og sjá má á myndinni.  

Talnapúkinn – þriðji hluti

Prenta
Skoða sem PDF skjal

15.2.2012 1.S.palldagskra.forsidaLeiklistin blómstrar í Laugarnesskóla þessa dagana. Í dag fengum við að sjá þriðja hluta leikritsins um Talnapúkann. Það voru nemendur 1. bekkjar S sem sáu um að skemmta áhorfendum. Fjórði og síðasti hluti verður svo sýndur á föstudaginn en þá stíga á svið nemendur 1. K. Dýrleif Jónsdóttir samdi leikritið upp úr bókinni Talnapúkinn eftir Bergljótu Arnalds.

 

 

 

 

Lesa meira...

Talnapúkinn

Prenta
Skoða sem PDF skjal

8.2.2012 palldagskra 1.bekkur.lNemendur í 1. L sýndu fyrsta hluta af leikritinu um Talnapúkann síðastliðinn miðvikudag. Þau eru búin að vinna mikið með tölur og bókina Talnapúkann eftir Bergljótu Arnalds. Dýrleif samdi leikrit fyrir alla fyrstu bekkina upp úr bókinni. Næstu hlutar leikritsins verða svo sýndir á næstu dögum.

Á döfinni