Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

pbstexti

 

Hvað er PBS?smellur1
PBS er heildstætt vinnulag sem ætlað er til þess að styðja skóla við að koma á góðum og jákvæðum aga. Tilgangur PBS er að skapa gott skólastarf með því að taka á hegðun með jákvæðum og kerfisbundnum hætti í stað þess að einblína á neikvæða hegðun og refsingar. Kerfið miðar að því að allir stafsmenn skóla komi að mótun og viðhaldi æskilegrar hegðunar í skóla. Kenningarlegur grunnur PBS er í atferlisstefnu og á þetta kerfi rætur sínar að rekja til Oregon University þar sem margir af virtustu fræðimönnum innan atferlisfræðinnar stunda rannsóknir sínar.

Hver er tilgangur PBS?smellur2
Tilgangurinn er í fyrst lagi að auka félagsfærni og nám með því að skilgreina, kenna og styðja við æskilega hegðun. Í öðru lagi er tilgangurinn að draga úr óæskilegri hegðun með því að búa til skýrar og fyrirsjáanlegar reglur um afleiðingar óæskilegrar hegðunar. Í þriðja lagi að samræma aðgerðir starfsfólks skóla til þess að auka æskilega hegðun og koma í veg fyrir eða draga úr óæskilegri hegðun.

Almenn framkvæmd

Áratuga rannsóknir á einstaklingum og hópum í skólum hafa sýnt fram á hvaða vinnulag skólar þurfa að tileinka sér til þess að hámarka líkurnar á viðeigandi hegðun. Algengasta leiðin til að móta hegðun skólabarna er að refsa fyrir óæskilega hegðun eða vísa börnum úr skóla. Rannsóknir hafa leitt í ljós að þess konar aðgerðir draga hvorki úr óæskilegri hegðun né kenna æskilega hegðun. Þvert á móti virðist besta árangri náð með því að útskýra nákvæmlega til hvers er ætlast, kenna markvisst æskilega hegðun og styrkja æskilegu hegðunina á kerfisbundin hátt. Ennfremur er talið mikilvægt að hafa skýrar og fyrirsjáanlegar aðgerðir í kjölfar óæskilegrar hegðunar. Áætlað er að það taki að minnsta kosti 3-5 ár að koma kerfinu alveg á í skólum.

Verkáætlun fyrstu árin

Verkefni fyrsta árs (undirbúnings ár 2005-2006)
Sett er saman teymi í hverjum skóla sem vinnur m.a. að eftirfarandi verkefnum.
• Búa til 3-5 reglur fyrir allan skólann t.d. hvaða reglur gildi í skólastofum
• Ákveða hvernig kenna skuli öllum börnum skólans reglurnar t.d. með því að nota leikþætti, sýnikennslu eða sögur (fer eftir aldri og þroska).
• Ákveða hverskonar umbun nemendur fái fyrir æskilega hegðun t.d. smelli og sérstök forréttindi.
• Ákveða hvernig setja á nemendum mörk á skýran og sanngjarnan hátt.

Verkefni annars árs (2006-2007)
Kenna starfsfólki og nemendum reglur skólans.
• Verkefni teymis er að huga að úrræðum fyrir nemendum sem ná ekki að tileinka sér nýtt vinnulag varðandi hegðun.
• Unnið með kennurum í markvissri bekkjarstjórnun

Mat á árangri
Mat á áhrifum íhlutunar fer fram jafnt og þétt allt skólaárið. Á undirbúningsári er tekin grunnlína og síðan fer stöðug gagnasöfnun fram til þess að hægt sé að meta árangur íhlutunar.

 

Mynd af skóla


Tilkynningar

Áhugavert að skoða:

  • Við viljum benda á að netföng starfsmanna breytast í vetur. Hægt er að sjá þetta úr skólastarfi hægra meginn á vefnum, ef þið smellið á starfsmenn.

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Slóðin þín:

PBS

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd